06.02.1975
Sameinað þing: 39. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1516 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Ólafs Þórðarsonar, Eyrargötu 1, Suðureyri, sem 1. þm. B-listans í Vestfjarðakjördæmi, en Ólafur er varamaður Gunnlaugs Finnssonar, 4. þm. Vestf.

Nefndin hefur ekkert fundið athugavert við kjörbréfið og leggur shlj. til að það verði samþ. og kosning Ólafs Þórðarsonar tekin gild.