19.11.1974
Sameinað þing: 10. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (145)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 14. nóv. 1974.

Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Alþb., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Svövu Jakobsdóttur, 5. landsk. þm., sem er á förum til útlanda og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþb., Kjartan Ólafsson ritstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru hennar.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ragnhildur Helgadóttir,

forseti Nd. Alþ.“

Ég leyfi mér að biðja kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréf og gef n. til starfa 10 mín. — [Fundarhlé].