24.02.1975
Neðri deild: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (1470)
Umræður utan dagskrár
Gylfi Þ. Gíslason:
Hæstv. forseti. Mér er ljóst, að það er ekki í verkahring hæstv. sjútvrh. að ákveða fiskverð. Mér er einnig ljóst, að það er ekki á hans valdi að breyta ákvörðun, sem þegar hefur verið tekin varðandi steinbitsverð, þeirri sem hér hefur verið gerð að umtalsefni. En ég vil hins vegar eindregið taka undir þá gagnrýni sem kom fram í ræðu hv. þm. Karvels Pálmasonar og Kjartans Ólafssonar á þá ákvörðun sem Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur tekið varðandi steinbítsverðið. Hér hafa orðið mistök sem bitna mjög illilega á vestfirskum sjómönnum. Það kom fram í ræðu hæstv. sjútvrh., að hann getur haft góð og skynsamleg áhrif á ákvarðanir Verðlagsráðs sjávarútvegsins, því lýsti hann sjálfur í ræðu sinni áðan. Á tveim mínútum á ég þess engan kost að gefa honum nein góð ráð um það hvernig hann nú gæti beitt áhrifum sínum til þess að bæta úr mistökum. Eina erindi mitt í ræðustólinn er að beina þeim eindregnu tilmælum til hans, að hann noti aðstöðu sína sem sjútvrh. til þess að leiðrétta óumdeilanleg mistök sem því miður hafa orðið.