28.02.1975
Neðri deild: 50. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2052 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)
162. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða
Gunnlaugur Finnsson:
Hæstv. forseti. Það, sem ég tel vera höfuðmismun á þessari brtt. hv. 5, þm. Vestf. og á þeirri till. sem var áðan felld, er að samkv. minni till. er gert ráð fyrir því að meginhlutinn af orkugjaldinu hefði farið í Orkusjóð og tiltölulega lítill hluti til niðurgreiðslu á hitunarkostnaði, þ.e. til jafns við rafhitun. Þá tel ég að með fullri nýtingu á þessu gjaldi til niðurgreiðslu á olíu kunni hitunarkostnaður með olíu að fara niður fyrir rafhitunarkostnað. Þótt ég telji eðlilegt að leggja þetta gjald á, þá mun ég sitja hjá við þessa atkvgr.