04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2103 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

320. mál, staðarval ríkisstofnana

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Málefni það, sem hér um ræðir, hefur ekki verið rætt svo ítarlega innan ríkisstj. að ástæða sé til að gefa sérstakar yfirlýsingar um það hér eða svara fsp. hv. þm. með öðrum hætti en þeim, að þegar álit þessarar stofnana, svokölluðu liggur fyrir mun auðvitað verða tekin afstaða til málsins í einstökum atriðum og það skilst mér að sé meginatriðið.