10.03.1975
Efri deild: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur beðið um orðið, en ég vil taka það fram að hann hefur þegar talað þrisvar. Hann hefur því ekki heimild til þess að tala oftar nema hann hafi sakir af sér að bera og vil ég spyrja hann hvort svo sé (StJ: Já.) Þá hefur hann heimild til örstuttrar aths., einungis til þess að bera af sér sakir.