11.03.1975
Sameinað þing: 49. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2256 í B-deild Alþingistíðinda. (1808)
311. mál, lagning byggðalínu til Norðurlands
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Það var ekki ætlun mín að lengja þessar umr. hér á hv. Alþ., en það voru orð tveggja síðustu ræðumanna sem komu mér til þess að koma í ræðustól og segja örfá orð.
Í fyrsta lagi vil ég segja það út af því sem kom fram hjá hv. i. landsk., að það getur auðvitað verið talsverður munur á því hvað menn tala um í sambandi við olíukostnað á Norðurlandi, eftir því hvort menn eru að tala um það ár sem liðið er eða hvort menn eru að tala um áætlanir fram í tímann, því að auðvitað eykst orkuþörfin þar eins og annars staðar á landinu. En hins vegar eru orkuframkvæmdir ekki komnar það langt að hægt sé að gera ráð fyrir því að innlendir orkugjafar komi þar að gagni fyrr en 1976 eða 1977.
En ég vil segja út af því sem hv. þm. Ragnar Arnalds var að segja hér áðan, að það væri orðinn nokkuð dýr sá dráttur sem orðinn væri á byggðalínunni síðan í sept.: Ja, drottinn minn dýri að heyra slík orð frá þessum hv. þm. Ég vil aðeins benda á það í þessu sambandi, að það var mikil áhersla lögð á það af hálfu ýmissa forustumanna norðlendinga á sínum tíma að reyna að fá það fram hjá hæstv. iðnrh. sem hafði þá á hendi forustu í orkumálum þjóðarinnar, hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni, að það yrði virkjað á Norðurlandi þegar var horfið frá Laxárvirkjun. Þá lágu skýrslur fyrir um hagkvæmni gufuveitunnar á Íslandi, en þá var stefnan þessi: Það átti að leggja línu þvert yfir öræfin, það átti að vera fljótlegast og best fyrir okkur norðlendinga að fá þá orku þannig, sú ákvörðun var tekin í tengslum við Sigölduvirkjun vegna þess að það þurfti að selja þaðan orku. Ég flutti um það till. þegar hér var til umr. framkvæmdaáætlun, að mig minnir fyrir árið 1972, að ráðh. yrði heimilað að nota það fé sem átti að nota til öræfalínu sem átti þá að koma 1973, þá fengi hann einnig heimild til þess að nota það fé til þess að rannsaka Kröflu, rannsaka virkjunarstaði á Norðurlandi. Hann lét fella þetta með meirihlutavaldi á Alþ., að hann hefði heimild til þess að rannsaka þau mál. Þannig var nú staðið að þeim málum þá. Ef hefði verið lagt fé til að rannsaka Kröflu 1972 og 1973, sem var skorið niður, værum við búnir að fá nóg rafmagn á Norðurlandi nú.