18.03.1975
Sameinað þing: 52. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2435 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)
327. mál, vetrarvegur um Breiðdalsheiði og tenging Djúpvegar við þjóðvegakerfi landsins
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hv. 5. þm. Vestf. sagði að ég hefði tekið undir allt sem hann hefði sagt. Þetta er ekki rétt. Mér er það ofviða og ég held að það fyrirfinnist ekki nokkur maður á hv. Alþ. sem getur tekið undir allt sem þessi hv. ræðumaður segir. Ég sagði, að ég tæki undir það sem hann hefði sagt um mikilvægi þeirra framkvæmda sem hér er fjallað, og það er allt annað.
Hv. þm., sem er þm. Vestf., talar eins og hann viti ekki um Vestfjarðaáætlunina, að hún hafi ekki verið til að því er virðist. Það brá fyrir fyrir nokkrum árum að menn létu sér slíkt um munn fara, en það gerir enginn nú. Menn gera það ekki eftir að þeir eru farnir að aka eftir þjóðvegunum sem byggðir voru samkvæmt Vestfjarðaáætluninni, eftir að þeir eru farnir að nota flugvellina sem byggðir voru og eftir að þeir eru farnir að nota hafnirnar sem byggðar voru. En svona er þessi hv. þm. langt leiddur. Hann talar um Vestfjarðaáætlunina eins og í lítilsvirðandi tón. Hvers vegna gerir hann það?
Ég er ekki kominn hér upp til að ræða Vestfjarðaáætlunina og ég ætla ekki að biðjast afsökunar á Vestfjarðaáætluninni. En ég bið menn að muna að ef í dag væri gerð hliðstæð áætlun og var gerð með Vestfjarðaáætluninni, sem hljóðar upp á 200 millj. kr. og þá voru fjárl. um 2 milljarðar, þá ætti ný Vestfjarðaáætlun að vera upp á um 5 milljarða kr. ef við miðum við fjárlög ríkisins — 5 milljarða kr. fyrir utan almenn framlög til framkvæmda á Vestfjörðum. Ef hv. 5. þm. Vestf. hefði haft hugsun á því að stuðla að því að í tíð fyrrv. stjórnar yrði eitthvert framhald á Vestfjarðaáætluninni, þá gæti hann kannske talað eins digurbarkalega og hann vill gera hér. En þessi hv. þm. ætti ekki að ræða með yfirlæti um þessi mál og kannske ekki um önnur mál.