18.03.1975
Sameinað þing: 52. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2441 í B-deild Alþingistíðinda. (1932)
171. mál, fiskvinnsluskóli
Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósepsson) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin þó að þau hafi ekki verið uppörvandi.
Það er sem sagt ástatt um þetta mál eins og ég bjóst við að væri. Það hefur ekkert verið gert í því að standa við þau fyrirheit sem gefin voru og Alþ. hafði beinlínis sett fyrirmæli um í lög. Þó kastar í rauninni alveg tólfunum þegar það verður síðan notað sem rök, sem mér fannst að nokkru leyti að hæstv. ráðh. gerði, hvað að Fiskvinnsluskólinn hefur verið laklega sóttur. Í honum eru fáir nemendur: 16 í 1. ársdeild, 15 í 2. og 11 í þeirri 3. og 13 í þeirri 4. Af þessu, hvað fáir hafa sótt skólann leiðir, eins og hæstv. ráðh. sagði að það hefur ekki verið ráðist í þennan undirbúning. Þetta var einmitt það sem alþm., úr öllum flokkum, sem fjölluðu um málið í sjútvn. Nd. á sínum tíma, vöruðu við. Þeir töldu allir að ef komið væri upp með þessum hætti aðeins einum skóla í Reykjavík sem gerði ráð fyrir 4 ára námi sem yfirleitt átti að standa í 9 mánuði og reyndar 3 mánuði til viðbótar í verklegri kennslu, þá mundi fara svo að þeir yrðu ekki mjög margir sem kæmu langa leið að til þess að setjast hér að um 4 ára tímabil og stunda nám sitt í þessum efnum hér. Af þeim ástæðum var lagt til að koma upp þessum forskólum, 1. og 2. námsári, víðs vegar úti um land, þar sem menn hafa mestan hug á þessum störfum og verða mest að vinna við þau, og þá mundi afleiðingin verða sú að sjálfur aðalskólinn hér fyrir sunnan yrði betur sóttur, einkum 3. og 4. námsárið. En það hefur því miður farið þannig að ýmsir forustumenn, sem með þessi mál hafa haft að gera, hafa litið öðruvísi á málið, og afleiðingin hefur orðið þessi, sem menn voru að vara við.
Auðvitað er þörf á því að koma upp þessum skólum. Við höfum hér í landinu yfir 100 frystihús. Við erum með á milli 100 og 200 aðrar fiskverkunarstöðvar, saltfiskverkunarstöðvar. Við þurfum því á að halda hæfu og góðu starfsliði í þennan iðnað og það má vitanlega ekki gefast upp við að leysa þetta verkefni á þann hátt sem gert hefur verið. Ég segi þetta ekki til þess að kenna núv. hæstv. menntmrh., sem aðeins hefur starfað stuttan tíma sem yfirmaður þessara mála, um hvernig komið er. En ég vil vænta þess að hann taki á þessu máli á þann hátt sem á að taka á því. Þeir, sem predika landsbyggðastefnu sí og æ, ættu ekki að vera hræddir við að koma upp skólum af þessu tagi á þann hátt sem gert er ráð fyrir í gildandi lögum um þetta efni. Ég vek enn athygli á því, að verði svo haldið áfram sem verið hefur, þá verður harla lítið gagn af þessum fiskvinnsluskóla.