16.04.1975
Efri deild: 67. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2944 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)

21. mál, trúfélög

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Það hefur orðið eins með þetta frv. og þau, sem lýst hefur verið hér á undan, að allshn. hefur athugað frv. á nokkrum fundum og kynnt sér umsagnir sem um það hafa horist. Nefndin leggur að þessari athugun lokinni einróma til að frv. verði samþ. óbreytt.