17.04.1975
Sameinað þing: 65. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3019 í B-deild Alþingistíðinda. (2260)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Mér hefur borist eftirfarandi bréf :

„Reykjavík, 17. apríl 1975.

Þorvaldur Garðar Kristjánsson, 3. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varam. minn, Jóhannes Árnason sýslumaður, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Eggert G. Þorsteinsson,

forseti Ed.