17.04.1975
Neðri deild: 68. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3023 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)

130. mál, fóstureyðingar

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Virðulegi forseti. Ég gerði grein fyrir því í gær við umr., er þá fóru fram um þetta frv., að ég teldi d-lið 9. gr. 1 gera greinina alla óljósari, teygjanlegri og erfiðari í framkvæmd og opna frv. óþarflega mikið. Ég flyt ekki brtt., en vænti þess að þessi stafliður verði tekinn til nánari athugunar við frekari meðferð málsins. Ég segi já.