23.04.1975
Efri deild: 70. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3156 í B-deild Alþingistíðinda. (2358)

134. mál, launasjóður rithöfunda

Ingi Tryggvason:

Herra forseti. Menntmn. Ed. hefur athugað frv. til laga um Launasjóð rithöfunda, og eins og fram kemur í nál. hefur n. orðið sammála um að mæla með samþykkt þess, en nm. jafnframt áskilið sér rétt til að fylgja brtt.