25.04.1975
Sameinað þing: 69. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3249 í B-deild Alþingistíðinda. (2395)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 23. apríl 1975.

Jón Helgason, 4. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég mun vegna annarra starfa ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 2. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Ólafur Ólafsson kaupfélagsstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Eggert G. Þorsteinsson,

forseti Ed.

Það liggur fyrir kjörbréf Ólafs Ólafssonar og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Fær n. 5 mín. tíma til að rannsaka kjörbréfið. Kjörbréfanefnd er orðin svo vön þessum störfum að hún þarf ekki lengri tíma. Fundi er frestað í 5 mín. — [Fundarhlé.]