25.04.1975
Sameinað þing: 69. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3249 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Tómas Árnason) :

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Ólafs Ólafssonar kaupfélagsstjóra á Hvolsvelli, sem er 2. varaþm. B-listans í Suðurlandskjördæmi og kemur inn sem 2. varaþm., en 1. varaþm., Guðmundur G. Þórarinsson, situr á Alþ., eins og hv. þm. er kunnugt. Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til að það verði samþ. og kosning Ólafs Ólafssonar tekin gild.