25.04.1975
Neðri deild: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3339 í B-deild Alþingistíðinda. (2431)
146. mál, Framleiðslueftirlit sjávarafurða
Frsm. (Pétur Sigurðsson) :
Herra forseti. Í grg., sem fylgir frv. þessu, segir svo, með leyfi forseta :
„Við afgreiðslu frv. í sjútvn. Ed. í des. s. l. féll niður ofangreind breyt. á frv. en hún telst nauðsynleg til þess að ugglaus sé verkaskipting milli Framleiðslueftirlitsins og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.“
Þar sem nm. voru sammála að koma til móts við þær óskir Ed. að leiðrétta mistök sem þar hefðu átt sér stað, þá leggur n, til að frv. verði samþ. óbreytt.