29.04.1975
Sameinað þing: 70. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3407 í B-deild Alþingistíðinda. (2499)
334. mál, nýskipan iðnfræðslu og tæknimenntunar
Sverrir Bergmann:
Herra forseti. Ég fylgi hér úr hlaði fsp. sem fyrr á þessu þingi var borin fram af Þórarni Þórarinssyni en hann er nú fjarverandi og kemur þetta því í minn hlut. Fsp. þessi er 3. liður á þskj. 358 og er til hæstv. menntmrh. um nýskipan iðnfræðslu og tæknimenntunar. Fsp. hljóðar svo:
„Hvað líður störfum nefnda þeirra, sem voru skipaðar 1973 til að vinna að nýskipan iðnfræðslu og tæknimenntunar?“
N. þessi mun hafa verið skipuð í febr. 1973 og verkefni hennar var að skila frv. til nýrra l. um iðnfræðslu og semja eins konar framkvæmdaáætlun í samræmi við lög, en eldri lög um iðnfræðslu, sem n. var falið að breyta eða endursemja, eru frá árunum 1966 og 1971. Samkv. skipunarbréfi mun þessi n. hafa átt að ljúka störfum fyrir árslok 1973. Hins vegar er það svo að haustið 1974 ræður hún sér fastan starfsmann og er því vafalaust enn að störfum, en um það munum við að sjálfsögðu fá upplýsingar því að óskað er svara við því hvernig störfum n. líði og hvað af þeim sé að frétta og hverra niðurstaða sé að vænta. Sé ég raunar ekki ástæðu til að hafa þennan inngang lengri.