30.04.1975
Neðri deild: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3472 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)

134. mál, launasjóður rithöfunda

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Virðulegi forseti, Þetta frv., sem er stjfrv., var flutt í Ed. Við 1. umr. málsins þar gerði ég grein fyrir efni frv. í einstökum atriðum. Ég mun ekki endurtaka þá ræðu hér, enda liggur hún þegar fyrir prentuð í Alþingistíðindum. Ég vil hins vegar leyfa mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn. og vænti að málið fái þar góða fyrirgreiðslu.