02.05.1975
Efri deild: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3485 í B-deild Alþingistíðinda. (2604)
66. mál, Sjóvinnuskóli Íslands
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Örfá orð til að vekja athygli á því frv. sem hér er um að ræða. Að mínu áliti er þetta gagnmerkt frv., ekki síst vegna þess, að sérkennsla þeirra sem starfa í sjávarútvegi hefur verið vanrækt og sjóvinnuskóli sá sem hér um ræðir mun sannarlega gera mikið gagn.
Mig langar til, með leyfi forseta, að lesa upp 2. gr., sem er um markmið skólans, en það er:
1) Að annast þá kennslu í verklegri sjóvinnu sem krafist er fyrir fiskimanna- og farmannapróf við stýrimannaskóla.
2) Að annast slíka kennslu utan Reykjavíkur og Vestmannaeyja, þar sem stýrimannaskólanám er stundað.
3) Að standa fyrir sjóvinnunámskeiðum fyrir pilta og stúlkur er hyggja á nám við stýrimannaskóla, enda veiti próf þaðan sömu réttindi og próf frá sjóvinnuskólanum.
4) Að annast kennslu í sjóvinnubrögðum við verknám gagnfræðastigsins við unglingaskóla og fjölbrautaskóla hinna stærri staða í samvinnu við viðkomandi fræðsluyfirvöld.
5) Að standa fyrir námskeiðum, ef þurfa þykir, fyrir leiðbeinendur sem annist kennslu í sjóvinnubrögðum meðal fullorðinna, kennara og unglinga, þó eigi oftar en annað hvert ár.
6) Að beita sér fyrir fræðslu í öllum framhaldsskólum í samráði við Slysavarnafélag Íslands og sjóslysanefnd um slysa og öryggismál sjófarenda með fyrirlestrum og fræðslumyndum.
7) Að tengja enn betur saman nám þeirra, sem á skipum ætla að starfa, við fiskiðnaðarnámið með fræðslu í meðferð og verkun sjávarafla meðal nemenda og unglinga- og gagnfræðaskóla og gefa þeim, sem sjómennsku stunda, frekara tækifæri til áframhaldandi náms á þessum sviðum.
Ástæðan til að ég vek athygli á þessu frv. er sú, að nú er mjög liðið á þingtíma og ég vildi óska þess að sú n., sem fær þetta frv. til meðferðar, hraði störfum þannig að okkur auðnist að koma þessu þarfa máli gegnum þingið fyrir þinglok.