02.05.1975
Efri deild: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3488 í B-deild Alþingistíðinda. (2609)

269. mál, mörk lögsagnarumdæma Reykjavíkur og Kópavogs

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi lýsa ánægju minni yfir því, að þetta frv. er komið fram, og ítreka það, sem hæstv. félmrh. sagði, að það er mikill áhugi fyrir því að það fái skjóta afgreiðslu. Það er ákaflega mikil nauðsyn á því fyrir þessi sveitarfélög bæði að frv. þetta verði að lögum á yfirstandandi þingi.