07.05.1975
Sameinað þing: 74. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3528 í B-deild Alþingistíðinda. (2656)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Út af því, sem hv. 9. þm. Reykv. sagði um setu varamanna á Alþ., er ég honum sammála. En í mörgum tilvikum verður ekki hjá því komist að varamenn taki sæti á Alþingi og allir þingflokkar hafa notfært sér þessi réttindi. Ég mun beita mér fyrir því, að ummæli hv. þm. varðandi setu varamanna á Alþ. verði tekin til umr. á meðal forseta þingsins og form. þingflokkanna.