07.05.1975
Sameinað þing: 74. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3529 í B-deild Alþingistíðinda. (2662)

110. mál, nefndarskipan um áfengismál

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þessi brtt. hefur það efni, að bráðabirgðaálit og till. n. skuli leggjast fyrir þingfl. í stað Alþingis. Ég tel þetta óeðlilegt. Ég tel þetta óheppilegt fordæmi um vinnubrögð og tel till. betri í því formi, sem hún var upphaflega, og segi því nei.