07.05.1975
Neðri deild: 79. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3637 í B-deild Alþingistíðinda. (2753)

230. mál, hjúkrunarlög

Jón Skaftason:

Virðulegur forseti. Heilbr.- og trmn. þessarar d. hefur haft til athugunar frv. til 1. um breyt. á hjúkrunarl., nr. 8 frá 13. mars 1974. Efni frv. kemur fram í gr. frv. sem ekki er margbrotið og rökstuðning fyrir breyt., sem við höfum fram að færa er að finna í aths. við frv. Heilbr.- og trn. leggur einróma til að frv. verði samþ.