26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í B-deild Alþingistíðinda. (282)

46. mál, sjónvarpsskilyrði á fiskimiðum umhverfis landið

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin. Ég ætla ekki að fara hér að ræða efnislega það sem hann drap á, enda er að því er mér virðist hér um langt mál að ræða. Ég bíð því þess að fá að sjá þetta merkilega plagg. En ég fagna því sem sagt að þessu er lokið, þó að seint sé. En betra er seint en aldrei, og ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin.