10.05.1975
Sameinað þing: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3764 í B-deild Alþingistíðinda. (2894)
215. mál, hafnaáætlun 1975-1978
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Út af fsp. hv. 11. landsk. um framkvæmdir í hafnamálum vil ég geta þess að fjárlög hvers árs eru auðvitað áætlun um hafnarframkvæmdir á því ári. Um það hvort verði skorið niður umtalsvert af hafnarframkvæmdum hefur engin ákvörðun verið tekin. Hafnarframkvæmdir verða ekki síður en aðrar framkvæmdir skoðaðar gaumgæfilega áður en til niðurskurðar kemur á þeim. Það vita allir að hér er um mjög nauðsynlegar framkvæmdir að ræða. En þó að enginn niðurskurður yrði gerður á þeim tölum sem eru í fjárl., þá er ekki hægt að koma fram þeim verkum, sem þar er ráðgert, vegna þeirrar verðhækkunar sem átt hefur sér stað síðan fjárl. voru afgreidd. Þess vegna verður einnig að taka þann þátt til sérstakrar athugunar. Hitt get ég svo sagt hv. 11. landsk., að hér er ekki verið að leggja fram neitt óraunhæfari till. að því er varðar árið 1975 en eru í fjárl. Það er verðlagið, sem hefur breytt þeim tölum, sem fyrst og fremst verður að skoða. Hvernig sú athugun kemur út kann ég ekki að segja, en ég get fullvissað hann um að það er enginn áhugi hjá einum eða neinum á að láta hafnargerðir fara verr út úr fjárframlögum en önnur verk, nema síður sé.
Út af því, sem hv. 2. landsk. sagði hér, mátti heyra að hann væri nú hvíldur vel eftir ferð sína til Genfar því að hann var svo hnarreistur og ánægður með sig. (Gripið fram í: Hann er það nú oft.) Já, hann er það alltaf, en þó var farið að draga af honum. En það er þetta venjulega tal þeirra hv. Alþfl.-manna að allt hafi farið úr böndunum síðan þeir fóru úr stjórnarstólum. Þetta kann maður utanbókar og getur sagt fyrir um. En ég sé ekki að reglugerðir eða áætlanir séu neitt betur settar þótt samþykktar séu, ef ekki hefur unnist nógu góður tími til þess að vinna að undirbúningi. Ég álít að það skipti mestu máli að allar áætlanir séu nógu vel uppbyggðar, og Hafnamálastofnunin hafði ekki nema fyrrasumar til þess að vinna að þessari áætlunargerð og henni er sjálfri ljóst að ýmislegt, sem í áætluninni er, getur ekki staðist, og það hafa komið fram nú á þessum vetri umtalsverðar veilur sem ekki er hægt að horfa fram hjá, Þess vegna var það í samráði við hana sem ég geri þá till. til hv. Alþ. og fjvn. að málið verði ekki afgreitt. Ef hv. Alþ. vill endilega afgreiða till. þrátt fyrir það, eins og hv. 2. landsk. virtist vilja, þá er ekkert við því að segja. En ég veit að þeir hv. alþm., sem líta raunhæft á málin, munu ekki óska eftir því, því að þeir vilja fá raunhæfar áætlanir, en ekki þær áætlanir sem ekki hefur gefist nógur tími til að undirbúa. Auk þess er það svo að heimamenn eiga að segja sitt um þessar áætlanir, og tíminn, sem þeir fengu til þessara mála, hefur ekki heldur verið nægjanlegur til þess að vinna að þessu sem skyldi. Til viðbótar er svo það sem ég gat um áðan, að verðhækkunin, sem verður á þessu ári, breytir áætlunargerðinni fyrir árið 1975 og hlýtur þess vegna að hafa áhrif á áætlunargerðina fyrir það sem á eftir á að koma.
Ég held því að hv. 2. landsk. þurfi ekkert að vera óánægður út af þessu og það sýnir bara að núv. hæstv. ríkisstj. vill vinna að því að gera áætlanir sem raunhæfastar og þess vegna sé þetta gert, því að það er ekkert gagn að höfn sem sígur eftir að búið er að byggja hana. Það er ekkert unnið við það nema tjónið. Það eru á þessari áætlun, eins og kemur fram í henni sjálfri, ýmsar hafnir með þeim hætti að það hafa ekki enn þá verið teknar ákvarðanir hvort um er að ræða trébryggjur eða stálbryggjur. Þetta verður auðvitað að vera búið að ákveða þegar raunveruleg áætlun er gerð.
Út af því sem hv. 12. þm. Reykv. sagði hér, þá hef ég ekki sýnt Reykjavíkurhöfn minni sóma en það að hafnarstjórinn í Reykjavík er í stjórnarnefnd hafnanna, þeirri sem ég skipaði. Ég veit að það er mjög hæfur maður og hann er formaður Hafnamálasambandsins, og ég taldi sjálfsagt að hann tæki sæti í þessari stjórnarnefnd.
Það er misskilningur að hafnareglugerðum hafi ekki verið hreytt. Þeim hefur verið breytt og stjórnarnefndin var að vinna að því máli. Um það má svo alltaf deila hversu langt á að ganga í hækkun á hafnagjöldum. Það orkar tvímælis og það er svo í þetta sinn sem fyrr.
Þetta vildi ég taka fram og sé ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar.