12.05.1975
Neðri deild: 83. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3894 í B-deild Alþingistíðinda. (3077)

269. mál, mörk lögsagnarumdæma Reykjavíkur og Kópavogs

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt samkv. ósk Reykjavíkurborgar og Kópavogskaupstaðar, en þessi tvö sveitarfélög hafa gert samkomulag sín á milli um nokkra breytingu á mörkum umdæmanna. Frv. var lagt fyrir hv. Ed. og var afgr. þaðan. Ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.