13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3961 í B-deild Alþingistíðinda. (3205)
329. mál, yfirvinna og aukagreiðslur í opinberum rekstri
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Spurt var um yfirvinnugreiðslur á umráðasviðum 5 tiltekinna rn. á árinu 1974. Ég hef látið taka saman yfirlit um greiðslur þessar í öllum rn. og er nú verið að leggja á borð hv. þm. grg. þar að lútandi. Ég sé því ekki ástæðu til þess að eyða tíma hv. þm. í að lesa þær tölur allar upp sem þar koma fram. Yfirvinnugreiðslur hjá ríkissjóði eru um 26% af því sem greitt er í mánaðarlaun. Þar sem yfirvinnustundir eru greiddar 60% hærra verði en dagvinnustundir, samsvarar þetta því að yfirvinnustundirnar séu 16% af dagvinnustundafjöldanum eða m.ö.o. að meðaltalsvinnuvikan sé 46.5 vinnustundir. Sé yfirvinnan hins vegar mæld í krónum verður það uppi á teningnum að fyrir hana eru greiddar um 1576 millj. kr. á ári ef reiknað er með þeim launatöxtum sem nú gilda. Nú eru samtals greiddir um 6 milljarðar í dagvinnulaun á ári og samkv. starfsmannatali því, sem gert hefur verið og ég áður hef getið um, eru 11425 starfsmenn hjá ríkinu og ríkisstofnunum.
Ég vil að lokum geta þess að nú fer fram sérstök athugun á því hvernig draga megi úr yfirvinnu hjá hinum einstöku stofnunum ríkisins án þess að bæta þurfi við nýjum starfsmönnum.