13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3982 í B-deild Alþingistíðinda. (3236)

182. mál, breytingar á íslenskum rithætti

Magnús T. Ólafsson:

Herra forseti. Ég tek ekki upp orðaskipti um efni þessa máls að fjarverandi þeim fyrirspyrjanda sem fsp. bar fram og samdi grg. sem lesin var af öðrum í hans stað. Aðeins get ég ekki látið hjá líða að vísa gersamlega á bug svigurmælum sem ég tel felast í þeirri grg. sem hér var lesin fyrir fsp.