13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3244)

37. mál, atvinnumál aldraðra

Svava Jakobsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að tefja þennan fund með neinni ræðu, en ég get ekki látið hjá líða, fyrir hönd okkar flm., að þakka hv. varaformanni nefndarinnar og nm. öðrum, sem hér eiga hlut að máli, fyrir afgreiðslu þessa máls og skilning þeirra á mikilvægi þess. Ég vil einnig lýsa því yfir fyrir hönd okkar flm. að við höfum ekkert að athuga við þá breytingu, sem nefndin leggur til að gerð verði, og getum sætt okkur við hana. Ég ítreka þakklæti mitt til nefndarinnar.