14.05.1975
Efri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4108 í B-deild Alþingistíðinda. (3369)

286. mál, iðnaðarmálagjald

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Við 2, umr. benti hv. 5. þm. Austf. á að heppilegra væri að skýrt kæmi fram í lögunum að iðnaðarmálagjaldið skyldi innheimt með iðnlánasjóðsgjaldi eða jafnvel yrði hluti af því. Sú brtt., sem ég hef lagt hér fram, er til þess að taka af öll tvímæli um að skattyfirvöld skuli leggja iðnaðarmálagjaldið á með iðnlánasjóðsgjaldinu og ætti það þá að vera alveg tvímælalaust.