14.05.1975
Neðri deild: 87. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4166 í B-deild Alþingistíðinda. (3408)

151. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar var lagt fram í Ed. og hefur verið skoðað af formönnum beggja hv. allshn. Er lagt til að frv., eins og það liggur fyrir eftir meðferð í Ed., með þeim viðbótarnöfnum, sem sett eru inn í frv., verði samþykkt óbreytt. N. mælir einróma með þeirri samþykkt.