14.05.1975
Neðri deild: 89. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4187 í B-deild Alþingistíðinda. (3446)

258. mál, Viðlagatrygging Íslands

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Við 2. umr. fór ég þess á leit að forseti sliti ekki umr. nema því aðeins að hæstv. ráðh., heilbr.- og trmrh. og hæstv. félmrh. gæfu yfirlýsingu um að lög um Bjargráðasjóð Íslands og lög um hina nýju viðlagatryggingu yrðu tekin til endurskoðunar á haustþingi. Ég vil nú, áður en kemur til afgreiðslu við 3. umr., freista þess enn hvort ekki er hægt að fá þessar yfirlýsingar.