15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4326 í B-deild Alþingistíðinda. (3565)

103. mál, siglingalög

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti.

Heilbr.- og trn. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á 1. nr. 108 frá 31. des. 1972, um breyt. á siglingalögum, nr. 66 frá 1963. Um er að ræða auknar tryggingar vegna sjómanna til ekkna og skylduliðs þeirra. Frv. hefur verið rætt í n. og leggur hún til að því verði vísað til ríkisstj. til athugunar.