16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4389 í B-deild Alþingistíðinda. (3706)

120. mál, fiskvinnsluverksmiðja á Snæfellsnesi

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti: Ég vil leyfa mér að þakka hv. n. fyrir það að hún skyldi hrista fram úr erminni þetta nál. á síðustu dögum þingsins. Ég hygg að mér sé óhætt að mæla fyrir munn okkar flm., sem erum allir þm. Vesturl., að við getum eftir atvikum sætt okkur við þann búning, sem n. mælir með á till., og vonumst til þess að hún þoki þessu máli í rétta átt.