11.12.1974
Efri deild: 18. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (559)

96. mál, launaskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Á þskj. 108 er frv. til l. um breyt. á l. um launaskatt. Hér er um að ræða framlengingu á gildandi lögum alveg óbreyttum eins og þau eru nú og hafa veríð frá því að lög um skattkerfisbreytinguna tóku gildi. Eins og rakið er í grg. með frv. eru lögin að stofni til frá 1965, en þá var lagður á 1% launaskattur. Árið 1970 var lagður á sérstakur launaskattur, 1.5%, í tengslum við efnahagsráðstafanir sem þá voru gerðar. Launaskattur hækkaði enn nú í ár um 1%. Var sú hækkun tengd ráðstöfunum til lausnar vinnudeilu sem uppi var fyrri hluta þessa árs.

Gildistími launaskatts samkv. lögum um skattkerfisbreytingu rennur út nú um n. k. áramót. Frv. á þskj. 108 gerir ráð fyrir að gildistíminn verði enn framlengdur um eitt ár og hefur verið við það miðað við gerð fjárlagafrv. Í fjárlagaræðu minni gerði ég þessa skattheimtu að umræðuefni, sérstaklega hvernig draga mætti nokkuð úr þeirri pappírsvinnu sem samfara er þeim mikla fjölda gjaldstofna sem við búum við.

Það er einnig óeðlilegt að binda gildistíma skatta í lögum, en þar sem hér hefur verið talið um bráðabirgðaskattheimtu að ræða að hluta til er að sjálfsögðu rétt að framlengja gildistíma laganna aðeins um eitt ár.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.