13.12.1974
Neðri deild: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

96. mál, launaskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Á þskj. 108 er frv. til l. um breyt. á l. um launaskatt. Hér er um að ræða framlengingu á gildandi l. alveg óbreyttum eins og þau eru nú og hafa verið frá því að l. um skattkerfisbreytingu tóku gildi. Eins og rakið er í grg. með frv. eru l. að stofni til frá 1965, en þá var lagður á 1% launaskattur. Árið 1970 var lagður á sérstakur launaskattur, 1.5%, í tengslum við efnahagsráðstafanir, sem þá voru gerðar, og launaskatturinn enn hækkaður í ár um 1% í tengslum við ráðstafanir til lausnar vinnudeilu, sem uppi var á fyrri hluta þessa árs.

Gildistími l. um launaskatt rennur út um næstu áramót. Frv. á þskj. 108 gerir ráð fyrir, að gildistíminn verði enn framlengdur um eitt ár, og hefur verið miðað við það við gerð fjárlagafrv.

Ég gerði grein fyrir því í fjárlagaræðu minni, hvernig bægt væri að draga úr þeirri pappírsvinnu, sem er samfara fjölda gjaldstofna, sem við búum við og með hvaða hætti mætti ráða bót þar á. Það er einnig óeðlilegt að binda gildistíma skatta í l., en þar sem hér hefur verið talað um bráðabirgðaskattheimtu að hluta til, er að sjálfsögðu rétt að framlengja gildistíma l. aðeins um eitt ár.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.