17.12.1974
Efri deild: 23. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (796)

49. mál, ráðning starfsmanna og húsnæðismál ríkisstofnana

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið frv. til l. um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismál ríkisstofnana til athugunar og mælir með því að það verði samþ. óbreytt.