17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (822)
111. mál, Hitaveita Suðurnesja
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Í raun og veru þarf ég ekki að hafa mörg orð um þetta frv. annað en að fagna komu þess hingað inn á Alþ. Vissulega hefði verið ánægjulegt að geta séð mál þetta nokkru fyrr hér á ferðinni, en ýmis atvík hafa leitt til þess að það er siðbúnara en við margir áttum von á. En því ber að fagna að það skuli vera komið og nauðsynlegt að veita því fljóta fyrirgreiðslu í gegnum hv. d. og nefnd.
Þetta er búið að vera alllengi á döfinni, eins og hæstv. ráðh. gat nm, og ýmsar athuganir benda til þess að hér sé um vænlegt og bráðnauðsynlegt fyrirtæki að ræða. Enginn aðili dregur í efa að hér er um mikla arðgjöf að ræða fyrir alla notendur þessa svæðis og mun heita vatnið gefa af sér fyrir þetta svæði mikla búbót, eins og annars staðar á landinu. Áætlaður kostnaður nálgast að vera 2 milljarðar kr. Ég vænti þess að aðflutningsgjöld af þessari stofnlögn verði felld niður, eins og heimilt er í lögum, en það kom hvorki fram í ræðu hæstv. ráðh. né kemur fram í sundurliðun ,í kostnaði að þessi heimild verði notuð. En ég geng út frá því að heimildin verði notuð. Hér er um stofnkostnað að ræða alveg hliðstæðan og á sér stað við aðrar virkjanir þegar um rafmagn er að ræða, og ég tel alveg einsýnt að þessi heimild verði notuð til þess að draga úr stofnkostnaði fyrir notendur þessarar hitaveitu.
Það er aðeins einn þáttur í þessu máli sem er enn óleystur. Hann er viðkvæmur og ekki tímabært kannske að fjalla um hann hér nú, þar sem ekki er svigrúm til að fara nánar út í þann þátt, en það er eignarréttaraðildin að landinu og á því sem upp úr því kemur. Ég vil lýsa þeirri ósk minni eindregið að um þetta náist samkomulag hið bráðasta og báðir aðilar megi þar við una. Það er miklu heilbrigðara og æskilegra að slíkt eigi sér stað heldur en að til deilu komi sem ekki verði leyst nema með eignarnámsaðför.
Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir að bera þetta frv. hér fram og lýsi eindregnum stuðningi mínum við það og óska eftir að það fái fljóta afgreiðslu.