17.12.1974
Neðri deild: 23. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (848)

111. mál, Hitaveita Suðurnesja

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls voru borin fram tilmæli um það, að iðnn. hraðaði afgreiðslu málsins til þess að reyna að ljúka því í báðum deildum fyrir jól. Ég vil leyfa mér að þakka iðnn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á málinu og vænti þess að það fái góðar undirtektir og greiða göngu í gegnum þingið.