12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

Umræður utan dagskrár

Axel Jónsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég fagna því að hv. 5. þm. Vestf. hefur nú, að ég hygg í fyrsta sinn á hv. Alþ., látið þessa skoðun sína opinberlega koma fram. Það er hins vegar augljóst að það er algjörlega öndvert við þá skoðun sem hans samflokksmaður, fyrrv. hæstv. samgrh., Magnús T. Ólafsson, hefur, þannig að það er augljóst að þingflokkurinn er algjörlega klofinn og skiptur í því máli. Ég vonast til þess sem sveitarstjórnarmaður, að hv. 5. þm. Vestf. auðnist loksins að telja samflokksmann sinn á að þetta sé rétt sjónarmið.