18.12.1974
Efri deild: 26. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (909)

111. mál, Hitaveita Suðurnesja

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Út af fram kominni brtt. vil ég segja þetta: Eins og kom fram hjá hv. flm. liggur fyrir Alþ. í öðru formi, og ég tel ekki rétt að flækja þessum tveimur málum saman, ef ég má orða það svo. Ég mun því greiða atkv. gegn þessari till. Hins vegar merkir það ekki að ég muni taka þá afstöðu til þess frv., þegar og ef það kemur til meðferðar í þessari deild.