18.12.1974
Neðri deild: 27. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (918)

4. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi

Lúðvík Jósepsson:

Forseti. Ég fer fram á að þetta mál verði ekki tekið hér fyrir til umr. áður en nál. hefur verið útbýtt. Það er alveg óvenjulegt og sýnist ekki nein ástæða til þess. Það er greinilegt, að hér er rétt aðeins búið að leggja á borð þm. till. frá meiri hl. n. og stutt nál. frá meiri hl., en álit minni hl. er ekki komið fram enn þá. Ég fer því fram á að þetta mál verði ekki tekið hér fyrir til umr. strax og þm. gefist a.m.k. kostur á því að sjá þau álit, sem frá n. koma, sem um málið hefur fjallað.