19.12.1975
Efri deild: 42. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1507 í B-deild Alþingistíðinda. (1197)

105. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Axel Jónsson) :

Herra forseti. Hv. fjh.- og viðskn. þessarar d. hefur fjallað um frv., eins og fram kemur á nál. á þskj. 262, og ekki orðið sammála um afgreiðslu þess, en undirritaðir nm. mæla með samþykkt frv., en minni hl., Jón Árm. Héðinsson og Ragnar Arnalds, hv. alþm., skilar sérálitum. Albert Guðmundsson tekur ekki þátt í afgreiðslu málsins.

Eins og hér segir leggur meiri hl. fjh.- og viðskn. til að frv. verði samþ. óhreytt.