20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1593 í B-deild Alþingistíðinda. (1293)

1. mál, fjárlög 1976

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Ég er enn sama sinnis og við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1975. Ég lít á verslunarstéttina sem einn sterkasta burðarásinn undir starfsemi þjóðfélagsins sem ég treysti best til þess að standa undir sameiginlegum þörfum þjóðfélagsins, enda sýna álögur þær, sem hingað til hafa verið lagðar á hana, þá stefnu. Ég vona að hún risi undir því, og ég hef þann metnað fyrir hennar hönd, að hún sé ekki að seilast til fjár úr ríkissjóði, allra síst á jafnerfiðum tímum og nú eru, og segi því já.