20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)

1. mál, fjárlög 1976

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Á undanförnum árum hefur styrkur íslendinga til vanþróaðra þjóða verið svo smár að hann hefur verið okkur til hreinnar vanvirðu. Það er til enn meiri skammar að taka meira frá þeirri stofnun heldur en við leggjum til hennar, á sama tíma og við styrkjum stórveldið Vestur-Þýskaland með 7000 millj. kr. á ársgrundvelli. Ég segi já.