26.01.1976
Sameinað þing: 39. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í B-deild Alþingistíðinda. (1325)

Jarðskjálftar í Þingeyjarsýslum

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þá skýrslu sem hann hefur hér gefið. Það er augljóst af ræðu hæstv. ráðh. að ríkisstj. hefur ákveðið, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, „að hlaupa undir bagga með svipuðum hætti og í sambandi við það tjón sem varð í Vestmannaeyjum og Neskaupstað á sínum tíma“. Ég vil leyfa mér að fagna því, hversu vel og myndarlega hæstv. ríkisstj. hefur brugðist við, og ég vona að framhaldið verði eins og byrjunin gefur tilefni til að ætla.