11.02.1976
Neðri deild: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

151. mál, gjald af gas- og brennsluolíum

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er hefur að undanförnu verið unnið að endurskoðun á sjóðakerfi sjávarútvegsins. Í till. þeirrar n., sem um þau mál hefur fjallað, og frv. hæstv. ríkisstj., sem hæstv. sjúvrh. mælti fyrir við 1. umr. í gær, er m. a. lagt til að Olíusjóður fiskiskipa verði lagður niður. Fram til þessa hefur verð á gasolíu til íslenskra fiskiskipa verið greitt niður af Olíusjóði og hefur verðið til fiskiskipanna numið kr. 5.80 á hvern lítra. Skv. gildandi lögum og verðlagsákvörðunum skal greiða söluskatt af gasolíu til fiskiskipa. Ef niðurgreiðslu á gasolíunni til fiskiskipanna verður hætt mun verðið til þeirra því hækka úr kr. 5.80 í 29 kr. á hvern lítra.

Með lagafrv. þessu um innflutningsgjald af gas- og brennsluolíum er lagt til að söluskatti þeim, er íslensk fiskiskip mundu að óbreyttum lögum þurfa að greiða af gasolíunotkun sinni, verði jafnað niður á alla notendur gasolíu og brennsluolíu, enda er við það miðað að verði frv. þetta að lögum muni fjmrh. nota heimild í söluskattslögunum til að fella niður söluskatt af gasolíu til íslenskra fiskiskipa.

Hér er ekki um nein nýmæli að ræða. Frá 30. júlí 1971 til ársloka 1975 var framkvæmd jöfnun á verði gasolíu milli notenda, ekki ósvipað því sem lagt er til í frv. Verðlagsnefnd ákvað 30. júlí 1971 í kjölfar niðurfellingar á söluskatti af húshitunarolíu að innflutningsjöfnunarreikningur skyldi bera upphæð samsvarandi söluskatti á gasolíu til fiskiskipa. Af þessu leiddi að í raun var lagt gjald á alla gasolíu, einnig hina söluskattsfrjálsu gasolíu til húshitunar, og nam það gjald kr. 1.58 á hvern lítra við síðustu áramót.

Frá áramótum hefur hins vegar ríkt millibilsástand í verðlagningarmálum á gasolíu. Verðlagsnefnd felldi fyrri ákvörðun úr gildi eða réttara sagt fyrri ákvörðun var látin niður falla 15. des. s. l., en ákveðið um leið að olíuverði skyldi haldið óbreyttu vegna óhagstæðrar stöðu verðjöfnunarreiknings gasolíu.

Með frv. þessu er lagt til að lögfest sé í breyttu formi sú meginregla, sem gilti um söluskattsmeðferð á gasolíu til fiskiskipa frá 30. júlí 1971 til ársloka 1975, þó þannig, að skipan sú, sem lagt er til að upp verði tekin með frv. þessu, þ. e. að jafna gjaldinu einnig á svartolíu sem verður að telja eðlilegt, leiðir til lægra verðs á gasolíu til fiskiskipa og húshitunar en orðið hefði ef áfram hefði verið haldið á fyrri braut. Þannig mun verð til fiskiskipa nema óniðurgreitt kr. 25.30 á lítra skv. frv. þessu svo og til húsahitunar, en hefði numið kr. 25.75 á lítra ef ákvörðun sú, sem ég gat um frá 31. júlí 1971, stæði enn.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meir um frv. Það er nánar skýrt í grg. Ég vil þó geta þess, að ég hef orðið var við vissa gagnrýni á verðákvörðun olíu. Ég hef því gert ráðstafanir til þess, að á fundum fjh.- og viðskn. d. verði lagður fram útreikningur af hálfu Verðlagsskrifstofunnar á því, með hvaða hætti verð á olíum er ákvarðað.

Ég legg svo til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. Ég vil mega vænta þess að þetta frv. geti fengið afgreiðslu á sama tíma og þau frv., sem rædd voru við 1. umr. í gær, og geti orðið að lögum nú fyrir helgi.