16.02.1976
Efri deild: 56. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1897 í B-deild Alþingistíðinda. (1587)

152. mál, ljósmæðralög

Flm. (Halldór Ásgrímsson) :

Herra forseti. Það frv. sem ég hef leyft mér að flytja ásamt hv. þm. Helga F. Seljan hefur áður komið fyrir þessa deild. Frv. var fyrst flutt á þinginu 1971–Í2 af Páli Þorsteinssyni og Helga F. Seljan. Því var þá vísað til ríkisstj. á þeim forsendum að nýrra ljósmæðralaga væri að vænta. Frv. var síðan endurflutt á þinginu 1974–75 af flm. þessa frv., en á ný var frv. vísað til ríkisstj. á þeim forsendum að breytinga væri að vænta. Það hefur ekki bólað enn á nýjum lögum eða öðrum breyt. frá heilbr.- og trmrn. og má að einhverju leyti vera um að kenna fjárskorti, en okkur flm. þykir rétt að endurflytja frv. óbreytt með svipaðri grg. þar sem hér er um brýnt hagsmunamál að ræða.

Ég tók það fram við framsögu málsins á síðasta þingi, að núgildandi lög um ljósmæður eru frá 1933 og því rúmlega 40 ára gömul og á þeim tíma hafa orðið mjög miklar breytingar í þjóðfélaginu, þannig að sum ákvæði ljósmæðralaga samrýmast engan veginn þeim öru breytingum sem hafa orðið og því hefur reynst óhjákvæmilegt að víkja frá þeim í framkvæmd.

Ég skal í stuttu máli gera grein fyrir þeim breyt, sem er lagt til í þessu frv. að gerðar verði á gildandi lögum.

Ljósmæður fá skipun til starfa af hendi sýslumanna eða bæjarfógeta. Umfang ljósmóðurstarfsins er mjög misjafnt. Nokkrar ljósmæður eru þannig settar, að um fullt starfssvið er að ræða, en flestar eru þannig settar, að ekki er um fullt starf að ræða, og launin miðuð við það að þau séu fremur þóknun en full starfslaun. Það er till. okkar sem berum fram þetta frv., að launakjör skipaðra ljósmæðra skuli ákveðin með kjarasamningum eða af kjaradómi á sama hátt og laun opinberra starfsmanna.

Þess skal getið, að í kjarasamningum, sem gerðir voru á árinn 1974, var ljósmæðrum skipað í 16. launaflokk, 2. þrep, byrjunarlaun, en það mun aðeins ná til þeirra örfáu einstaklinga í stéttinni sem hafa fullt starf, m. a. við heilsugæslustöðvar. Um kjör annarra ljósmæðra mun hafa skipast þannig, þegar almennar launabreytingar hafa orðið, að heilbr.- og trmrn. hefur gert till. um það, hverjar breytingar skyldu gerðar hverju sinni á þeirri þóknun eða því kaupgjaldi sem ljósmæður úti á landsbyggðinni fá, og síðan hafa þessar till. verið lagðar fyrir fjmrn. sem hefur raunverulega ákveðið nefndar greiðslur. Það er ekki í sjálfu sér nein ástæða til að ætla að rn. hafi tilhneigingu til að halla á þessa starfsmenn, en hins vegar teljum við það ekki eðlilega skipun að rn. ákveði launakjör þessara starfsmanna sem hafa fengið bréf um skipun í opinber störf. Við teljum eðlilegast að þetta verði lagt í hendur þeirra sem fara með kjarasamninga opinberra starfsmanna eða kjaradóm.

Önnur ákvæði í 4. gr. eru óbreytt í frv. okkar frá því sem er í gildandi lögum. Við teljum koma til álita að sú skipan verði tekin upp, að ríkissjóður greiði hluta af launum allra ljósmæðra í landinu hvort sem þær starfa í kaupstöðum eða sveitum. Það getur því komið til athugunar við meðferð málsins, en ekki er gerð till. um það í þessu frv.

2. gr. þessa frv. kveður svo á, að ljósmóðir, sem skipuð er í starf skv. frv., eigi rétt á orlofi ár hvert á sama hátt og aðrir opinberir starfsmenn. Það má telja sjálfsagt að þessi réttur sé veittur á sama hátt og öðrum stéttum, en það eru engin ákvæði um þetta efni í núgildandi ljósmæðralögum og því fá héraðsljósmæður ekkert orlof greitt.

Þá er gert ráð fyrir því í þessu frv., að aftan við lökin komi ákvæði til bráðabirgða, svo hljóðandi:

„Á árinu 1976 skal hver sýslunefnd endurskoða skiptingu sýslunnar í ljósmæðraumdæmi, sbr. 2. gr. laganna.

Að endurskoðun lokinni skal sýslunefnd í hverju lögsagnarumdæmi gera ráðh. grein fyrir till. um skiptinguna og leita samþykkis hans á þeim.“

Í 2. gr. ljósmæðral., sem hér er vitnað til, segir svo orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Hverri sýslu landsins skal skipt í ljósmæðraumdæmi og gerir sýslunefnd það með samþykki ráðh. Skipa skal eina ljósmóður til að gegna hverju umdæmi og hefur hún þar aðsetur er sýslunefnd þykir hæfa.“

Skipting í ljósmæðraumdæmi, eins og hún er nú í mörgum eða jafnvel flestum sýslum landsins, er miðuð við það, að hvert sveitarfélag sé ljósmæðraumdæmi út af fyrir sig. Því teljum við eðlilegt að sú skipting, sem gilt hefur, skuli tekin til endurskoðunar. Þessi skipting var eðlileg þegar samgöngur voru litlar sem engar, landið nær veglaust, vatnsföll óbrúuð og bifreiðaeign lítil. Með þeim breytingum, sem orðið hafa á samgöngukerfi landsins, og með þá staðreynd í huga, að mjög erfitt er að fá ljósmæður til að gegna starfi í mörgum fámennum byggðarlögum, teljum við eðlilegt að þessi mál verði tekin til endurskoðunar. Við leggjum á það áherslu, að slík endurskoðun verði fyrst og fremst í höndum sýslunefnda, en með því fæst trygging fyrir því að um þessi mál fjalli nefnd með staðgóðri þekkingu á staðháttum og aðstöðu hvers byggðarlags.

Þegar ákveða skal hvernig skipta skal héraði í ljósmæðraumdæmi, þá ber að dómi flm. að taka tillit til ýmissa sjónarmiða. Það ber að líta á sérstöðu einstakra byggðarlaga og hafa það í huga, að ávallt verði veitt svo góð þjónusta á þessu sviði sem kostur er. Það verður einnig að taka tillít til samgangna innanhéraðs, eigi aðeins á þeim árstíma þegar samgöngur eru bestar, heldur einnig og ekki síður að líta til samgangna eins og þeim er háttað að vetri til.

Þá er einnig rétt að hafa hliðsjón af fólksfjölda í sveitarfélögum og gera sér grein fyrir því að fenginni reynslu hvort auðveldara muni reynast að fá ljósmæður til starfa í allfjölmennum umdæmum fremur en hinum fámennustu.

Enn fremur verður að hafa í huga löggjöf um heilbrigðisþjónustu frá 27. apríl 1973, en þar er gert ráð fyrir mikilli stækkun læknishéraða. Skv. lögum um heilbrigðisþjónustu er ætlunin að stofna 40 heilsugæslustöðvar og er því eðlilegast, sé starfandi héraðsljósmóðir í umdæminu fyrir, að þá sé henni gefinn kostur á starfi við heilsugæslustöð að undangenginni endurhæfingu.

Þótt þessi skipan verði tekin upp mun það ekki leysa vanda allra starfandi ljósmæðra og viðkomandi byggða. Bæði er það, að nokkur ár munu vafalaust líða þar til heilsugæslustöðvar munu taka til starfa um allt land, svo og sú staðreynd, að nauðsynlegt er að hafa ljósmæður starfandi utan heilsugæslustöðva, bæði vegna fjarlægða og farartálma. Þá virðist augljóst að í sambandi við skipulagsbreytingu á þessu sviði beri sérstaklega að athuga hvort hagkvæmt sé að auka verkefni ljósmæðra í umdæmum utan kaupstaða með því að þær jafnframt ljósmóðurstarfi veiti héraðslæknum aðstoð við almenna heilsugæslu. Þetta mundi sérstaklega eiga við og geta komið sér vel í byggðarlögum, sem eru í mikilli fjarlægð frá heilsugæslustöð, og í fámennum ljósmæðraumdæmum.

Á s. l. ári var þessu máli vísað til ríkisstj., og ég vil — með leyfi hæstv. forseta — vitna í orð hæstv. heilbr.— og trmh. sem fór mjög vinsamlegum orðum um þessi mál er hann svaraði fsp. hv. þm. Helga F. Seljan í Sþ. um þessi mál, en hæstv. heilbr.- og trmrh. sagði, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég vil aðeins láta það koma fram að ég tel þennan starfshóp og þessa stétt það mikilvæga, að ég vil taka alveg fullt tillit til þeirra óska sem þar hafa komið fram. Þó að breytingar séu að verða, sérstaklega í þéttbýli, og breytingar verði óhjákvæmilega allmiklar á komandi árum með byggingu heilsugæslustöðva, þá á það svo langt í land að þessi stétt er nauðsynleg og verður að viðhalda eðlilegri fjölgun í henni, þannig að hún geti innt af hendi þetta starf í strjálbýli. Ég tel alveg sjálfsagt að þetta hafi þessi n. í huga“ — en þar vitnaði hæstv. ráðh. í nefnd sem hafði þessi mál til athugunar. — „Þegar hún hefur skilað uppkasti að reglugerð verður auðvitað farið yfir þá reglugerð í heilbr.og trmrn. og þá mun ekki standa á mér að hafa samband við Ljósmæðrafélagið áður en reglugerð verður sett og gefa félaginu tækifæri til þess að gera aths. við væntanlega reglugerð.“

Það er því ljóst að hæstv. ráðh. hefur tekið mjög vinsamlega undir þetta mál.

Ljósmæður eru elsta launastétt kvenna á Íslandi. Árslaun þessarar stéttar eru afskaplega lítil og í mörgum tilfellum munu þau samsvara eins til tveggja mánaða launum þeirra lægst launuðu í stéttum opinberra starfsmanna, en ljósmæður munu vera skv. síðustu upplýsingum 72. Héraðsljósmæður njóta ekki orlofsréttinda. Taki þær sér frí þurfa þær að útvega ljósmóður í sinn stað og greiða laun hennar. Héraðsljósmæður greiða í Lífeyrissjóð ljósmæðra. Vegna lágra launa og ákvæðis laga um framlag ríkisins er sjóðurinn ljósmæðrum nánast einskis virði. Þessi merkilega stétt á annað skilið en að dragast aftur úr þeim kjarabótum sem orðið hafa á undanförnum árum. Fyrsti landlæknirinn kom því til leiðar fyrir u. þ. b. 200 árum að ljósmæður væru launaðar af opinberu fé, en áður var ætlast til þess að yfirsetukonur fengju greitt sanngjarnlega fyrir ómak sitt, en fátækum skyldu þær hjálpa fyrir guðs sakir. Frá 1933 hafa ljósmæður litlar réttarbætur fengið. Margar af núv. héraðsljósmæðrum hafa unnið þrotlaust starf, en hverfa frá því án teljandi eftirlauna. Ég vil því eindregið mælast til þess, að bætt verði hér úr og frv. þetta fái afgreiðslu í hv. heilbr.- og trn.

Að svo mæltu vil ég leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.