16.02.1976
Neðri deild: 59. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1900 í B-deild Alþingistíðinda. (1589)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir) :

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 13. febr. 1976. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 135. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Karl G. Sigurbergsson skipstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Gils Guðmundsson, 3. þm. Reykn.“

Ég býð Karl G. Sigurbergsson velkominn til starfa hér í deildinni.