17.02.1976
Sameinað þing: 51. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1922 í B-deild Alþingistíðinda. (1598)

111. mál, sjóefnavinnsla á Reykjanesi

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir það svar sem hann hefur gefið við fsp. minni og var á allan hátt ítarlegt og ljóst. Ég sé ástæðu til að fagna því sérstaklega að unnið hefur verið að framgangi þessa máls á undanförnum mánuðum. Af þeim upplýsingum, sem fram komu í ræðu hæstv. ráðh., má gera ráð fyrir að til þessa fyrirtækis verði stofnað og að rökstuddar vonir standi til þess, að þar verði um arðbært fyrirtæki að ræða sem væntanlega geti lagt sitt af mörkum til að styrkja þjóðarbúskap okkar, sem ekki er vanþörf á. — Ég þakka hæstv. ráðh. svarið.